Jólakort og merkimiðar til styrktar Dropanum

Eins og síðustu ár gefur Dropinn út jólakort og merkispjöld fyrir gafir og eru það krakkar úr félaginu sem skreyta kortin.

Kortin í ár eru einstaklega glæsilega og viljum við þakka þeim Ísabellu Dís Sheehan og Söru Kristínu Smáradóttur fyrir myndirnar. Þær eiga von á glaðningi með póstinum.

Kortin og merkimiðarnir fást hjá stjórnarmeðlimum Dropans, best er að senda skilaboð á dropinn@dropinn.is og leggja inn pöntun. 10 stykki af kortum kosta 2000 kr og 10 merkimiðar 1000kr. Póstburðargjald leggst ofaná verðið.