Jólakort til styrktar Dropans

Eins og síðustu ár gefur Dropinn út jólakort og merkispjöld fyrir gafir og eru það krakkar úr félaginu sem skreyta kortin.

Kortin í ár eru einstaklega glæsilega og viljum við þakka þeim Arnari Smára, Bergsteini Þór, Emblu Rós, Hauki Frey, Lísu, Söru og Viktoríu Rún kærlega fyrir myndirnar. Þau fá glaðning sendan heim á næstu dögum.

Kortin og merkimiðarnir fást hjá stjórnarmeðlimum Dropans, best er að senda skilaboð á dropinn@dropinn.is og leggja inn pöntun. 10 stykki af kortum kosta 2000 kr og 10 merkimiðar 750kr. Póstburðargjald leggst ofaná verðið.