Námskeið um sykursýki skólabarna

Göngudeild barna og unglinga auglýsir:

Miðvikudag, 21. febrúar næstkomandi  kl: 14-16 verður næsta námskeið um sykursýki skólabarna og mun það fara fram í Hringsal Barnaspítala Hringsins,  1.hæð

Á námskeiðinu verður fjallað um sykursýki barna, þarfir þeirra á löngum skóladegi og hvernig hátta megi stuðningi við þau og fjölskyldur þeirra.

Kynntar verða blóðsykurmælingar og insúlíngjafir, fjallað um lágan og háan blóðsykur, einkenni og viðbrögð, og áhrif hreyfingar á blóðsykur.

Næringarráðgjafi mun fjalla um hollt og gott fæði fyrir skólabörn með sykursýki.

Að lokum verða  umræður um sykurstjórnun á skólatíma og kynnt verður tillaga að samstarfi milli forráðamanna barns og starfsfólks skólans.

Skráning:   http://www.landspitali.is/namskeid-sykursyki

Námskeiðið er með annars fyrir kennarar, leikskólakennarar og annað starfsfólk leik- og grunnskóla, ásamt  starfsfólki frístundaheimili. Námsfyrirkomulag:   Fyrirlestrar og umræður. Kennslugögn verða afhent. Leiðbeinendur eru María Guðnadóttir, hjúkrunarfræðingar og Sigríður Eysteinsdóttir,  næringarráðgjafi  

Þátttökugjald er 2000  krónur