Góðgerðartónleikar og útgáfufögnuður á alþjóðadegi sykursýki 14.nóv

Dropinn – styrktarfélag barna með sykursýki heldur styrktartónleika miðvikudagur 14. nóvember klukkan 20.00 í Seljakirkju. Megin markmið Dropans er að halda úti sumarbúðum fyrir börn og unglinga með sykursýki. Öll innkoma af miðasölu á þessa tónleika rennur óskipt í sjóð fyrir sumarbúðirnar.

Fram koma: Una Stef, Svavar Knútur, Jónsi, Matthías Stefánsson, Siggi Swing and his Bluesberries, Sunna Gunnlaugsdóttir, Unnur Birna og Dagný Halla Bassadætur ásamt Sigurgeiri Skafta Flosasyni, Ingrdi Örk Kjartansdóttir, Hljómsveitin Værð. Listinn er enn að lengjast, sjá nánar á dropinn.is

Við sama tilefni fögnum við útkomu nýrrar fræðslubókar ,,Þór fer í sumarbúðir”. Bókina skrifar Ingrid Örk Kjartansdóttir en Sunneva Thomsen Halldórsdóttir myndskreytir. Lions á Íslandi kostar útgáfuna.

Miðaverð í forsölu 2500kr en 3000 við inngang.
Miðar hér: https://tix.is/is/buyingflow/tickets/7027/

Vonumst til að sjá sem flesta!

14. nóvember er alþjóðlegur vitundarvakningar dagur um sykursýki og afmælisdagur Kanadíska vísindamannsins og nóbelverðlaunahafans Frederik G. Banting sem ásamt aðstoðarmanni sínum Charles Best, einangraði hormónið Insúlín. Það var fyrsta skrefið í að breyta sykursýki úr dauðdadómi yfir í ástand sem hægt var að lifa með.